….er tveir þættir tengdir ansi sterkum böndum. Að sjálfsögðu ákvað ég að elda gómsætan mat og herlegheit og bjóða góðum vinum í ekta júró stemmningu eins og hún gerist best. Kvöldið byrjaði frábærlega og heppnaðist fyrsta prufa úr “grill” Gestgjafanum ansi vel. Svo kom að keppninni. Ég átti mín uppáhaldslög eins og flestir partýgestir, og stóð þar danska lagið upp úr. Ég var alls ekki viss um að við næðum í aðalkeppnina svo það var eiginlega bara plús, ég var aldrei slíku vant ekki á hnefanum í keppnisskapinu. Mér fannst þetta bara alveg ótrúlega skemmtilegt. Ég hló auðvitað svakalega og mikið djeskolli er það nú gott. Í fyrsta lagi þá var sænska divan einum of “strekkt” að mínu mati og ætti kannski að fara að hitta einhvern annan en lítalækninn sinn – fegurðin að innan jú nó! Nú, hún Britney vinkona vín var mætt galvösk fyrir Grikkland – þetta var í það minnsta litla systir hennar og hún var greinilega búin að læra rassahristinginn vel af video-um stóru sys. Gamli Króatinn stóð fyrir sínu – nett sjarmatröll á ferð. Gaman að sjá hvernig vindurinn fékk að fjúka í andlit ófárra meyjanna svo hárið flyksaðist til og frá – hver ætli hafi verið á viftunni? Og svo kom Rússinn – ..og dramatískasti flutningurinn er…..!!!!! óhætt að segja að tjáningu hafi ekki verið ábótavant á þeim bænum. Minn greinilega ánægður með bringuna sína og hvað var með skautaprinsinn????? Herre Guuuud. Hann sveiflaði sér með þvílíkum tilþrifum í kringum víólínistann og dramadrottninguna, og……hver sagði honum að þessi klipping væri inn?? Sá hinn sami má dauðskammast sín. Og á svellinu stóð Rússinn berfættur. Ég segi bara eins og Samúel vinur Stellu: Má þetta?? Mágur minn fékk vægast sagt tremmakast þegar hann horfði á atriðið og við gjörsamlega lágum í kasti. Og ekki varð það betra þegar þeir enduðu flutninginn á að leggjast nú allir saman á hnén á svellið. “Impassabaaal” söng divan (vissi ekki fyrr en eftir á að hann talaði víst bara rússnesku og hlýtur framburðurinn að vera bara luxus miðað við það). Svo kom nú að stigagjöfinni og þá fór að færast fjör í leikinn. Ég hélt auðvitað áfram að hlæja yfir þeim sem kynntu stigin fyrir hvert og eitt land. Það var alveg sprenghlægilegt hvað fólk reyndi og reyndi að vera nú hresst og kátt. Sumir sungu, aðrir hrósuðu fegurð kynnanna í hástert og …ég bara spyr, ef Svíinn var sá besti sem var í boði, hvernig voru þá hinir?? Ég hélt að hann stamaði svona svakalega þegar hann var að þylja upp stigin. En nei…hann var að reyna að vera fyndinn með því að gefa sínu eigin landi 12 stig. Gamalt djók og allir að reyna að nýta sínar 15 sekúndur af frægð sem best. Og mikið rosalega var Danska skvísan dönsk, Finninn finskur, Svíinn sænskur og Írska maddammann var meira að segja rauðhærð. Hvernig er það, er fólk valið eftir ímynd lands og þjóðar? Maður spyr sig. Maður fékk auðvitað árvissa svekkelsis pakkann yfir að löndin í austri standi saman og flugu athugasemdir þar að lútandi sitt á hvað í stofunni í hvert sinn sem Grikkland og Rússland fengu stig. Mér persónulega fannst Gríska lagið betra, hugsa að það sé þessu dumb and dumber atriði að gera og þá helst klippingunni á skautaprinsinum. Prins Valíant hvað? Þvílíkur humor….en verst finnst mér að þetta var örugglega ekki humor. Greyjið þeir. En svo uppgötvaði ég, einu sinni sem oftar, að það sem við kvörtum undan gerum við oftar en ekki sjálf. Hverjum gáfum við til dæmis 12 stig….- Dönum. Og hverjir gáfu okkur 12 stig… - Danir. Einmitt, við sögðum líka að okkar stig í keppninni kæmu seint. Af hverju var það? Af því kannski að við vissum hvaða þjóðir myndu sennilega kjósa okkur. Kannski bara klíka hjá okkur líka, svei mér. Og þegar ég velti því svo fyrir mér hvernig það væri samt hægt að kjósa svona hræðilega lag kom kom nýja svilkonan mín með þá athugasemd að þeirra tónlistarsmekkur er bara allt allt annar en okkar. Þess vegna eru lögin þeirra allt öðruvísi en okkar lög og stigagjöfin eftir því. En svo kom endapunkturinn…..eftir flutning Rússans aftur á sigurlaginu heyrðist sagt hátt og snjallt af skautaprinsinum: “Seink jú verí næs!!!” Þetta gjörsamlega drap mig úr hlátri. Ég held ég hafi misst úr slag. Þetta er algjör djók setning sem hefur verið notuð í miklu hallæri til að lýsa lélegri ensku kunnáttu. Aldrei hef ég heyrt nokkurn mann láta þetta út úr sér fyrr, en þarna spratt þetta fram eins ljóslifandi og orð geta verið. Takk! Snilldin ein, ég vissi að ég gæti stólað á Valíant.
Annars stóðu Íslendingarnir sig brjálæðislega vel. Spenna í fólki sem fékk að fara út í allar æðar og það skilaði sér heim í stofu. Flottur flutningur í alla staði. Og þegar Danir gáfu okkur 12 stig, síðasta stigagjöf kvöldsins og úrslitin þegar ljós, þá öskruðu allir í stofunni eins og við hefðum unnið. Hvað er það? Ég játa að ég tók þátt í þeim þjóðrembugjörningi. Segiði svo að við styðjum ekki okkar fólk. Ég veit að keppnin á næsta ári verður örugglega rosalega flott, Rússland er flottur vettvangur fyrir svona viðburði og vonandi verður öllu til tjaldað. Ég er svo fegin að við unnum ekki, því við höfum engan veginn efni á að halda svona keppni og það veit karlinn á efri hæðinni og við hin öll líka, að remban í okkur, þessum 300 þúsundum, er bara einum of mikil til þess að við færum að neita að halda keppnina eins og einhverjir hafa gert. Glætan. Ekki stórkarlarnir við. Ísland – best í heimi.
Annars lofa ég ykkur einu. Eftir að Sandra Kim vann forðum daga fóru allir að senda börn til að taka þátt í keppninni, síðasta æðið voru trumburnar og stóru trommurnar og eru þær enn við líði að einhverju leiti. Ég tippa á, miðað við keppnina núna, að næsta ár verði æðið strekktar megabeibur með silicon í snípsíðum pallíettukjólum og rassahristingar á heimsmælikvarða. Hverjir eru með ?
|
Ísland endaði í 14. sæti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
| Maí 2012 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 11814
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


almaogfreyja
amotisol
davidwunderbass
erla1001
gretarorvars
hugs
iador
jahernamig
jea
jax
gummiarnar
king
olijon
saragumm
monsdesigns
steinibriem
manzana



Athugasemdir
Það er gaman af því að þú sjáir spaugilega hluti við tungumálkunnáttu annars fólks. Sérstaklega fólks sem kemur frá landi þar sem talað er inn á erlent sjónvarpsefni. Það væri sjálfsagt oborganlegt fyrir Rússa að hlusta á þig þakka kærlega fyrir þig á rússnesku fyrir framan milljónir manna;) En sá sem vann í kvöld er ein helsta popstjarna evrópu og Rússar unnu á því. Hann er örugglega í topp 5 yfir flestar seldar plötur í evrópu fyrir 2003-2007. Hann er stjarnan í allri austur evrópu sem er ansi stór og fjölmenn. Þeir hafa sína eigin MTV stöð og sennilega eru þjóðirnar þarna í austri að græða á því að senda stjörnur í keppnina enda er þessi keppni tekin alvarlega þarna. Aðrar þjóðir í evrópu eru ekkert að senda svona fólk enda hefur það fólk takmarkaðan áhuga á því. En okkur líkar ekkert voðalega vel við tónlistina þarna og það er sama með þetta fólk sem líkar ekki mikið við Björk, Megas eða Bubba:)
Ingi (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 01:05
Sæll Ingi. Við erum að minnsta kosti sammála um að tónlistarsmekkur skiptist að einhverju leiti í tvennt eftir legu landanna í Evrópu. Það var einmitt það sem ég tók fram. Ég hafði gaman af þessu atriði, eins og fólk hafði gaman af Páli Óskar í plastinu hér forðum daga. Ég var alls ekki að gera lítið úr atriðinu, kýs að taka það fram ef þú leist þannig á þennan pistil minn. Ég hafði einungis gaman af að sjá hvernig þjóðir taka misjafnan pól í hæðina hvað keppnina varðar. Ég hefði líka hlegið að því ef Íslendingar hefðu sent skautastjörnu, eða Jón Arnar á hlaupaskónum :) Þetta lag vann og það segir sitt um vinsældir þess í Evrópu. Málið er dautt. En hvað enskukunnáttu þeirra varðar, þá dáist ég að því að þeir reyni að tala hana. Ég veit að efni þeirra er talsett. Það sem var einungis fyndið var að hann skyldi akkúrat nota þá setningu sem hefur verið notuð í gríni í mínum vinahóp. Þetta er alls ekki sagt með neinum hroka eða leiðindum. Rússar eru rússar og Íslendingar eru Íslendingar og allir jafnir. Ef ég hefði mætt í bleikum ballerínubúning og sagt takk fyrir mig á bjagaðri rússnesku, þá hefðu Rússarnir alveg mátt hlæja :) Mér fannst þetta bara fyndið atriði með öllu og hefði þótt það, sama þó það hefði verið frá Íslandi. En það er mitt álit og þarf ekki á nokkurn hátt að endurspelga mat þjóðarinnar :)
Hulda Proppé, 25.5.2008 kl. 10:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.